|
|
|
Þjónustumiðstöð rannsóknaverkefna
Þjónustumiðstöð
rannsóknaverkefna (ÞR) er sjálfseignarstofnun
og hóf starfsemi sína fyrsta apríl 1998.
Hlutverk hennar er að sjá um klínískan
hluta erfðafræðirannsókna Íslenskrar
erfðagreiningar fyrir þá samstarfsaðila
innan íslenska heilbrigðiskerfisins sem þess
óska. Starfsmenn vinna í umboði ábyrgðaraðila
einstakra rannsókna að söfnun lífsýna
og upplýsinga um einkenni sjúkdóma, áhættuþætti,
greiningu og meðferð.
Starfsemi ÞR felst meðal annars
í:
- skipulagningu á klínskum
hluta erfðafræðirannsókna,
- að senda kynningarbréf til
væntanlegra þátttakenda,
- símtölum og viðtölum
við þátttakendur,
- að senda gögn eins og spurningalista
til þátttakenda,
- móttöku þátttakenda
og blóðtöku,
- frágangi sýna og gagna
til rannsókna,
- heimsóknum í heimahús
og á stofnanir.
Þjónustumiðstöðinni
er stýrt af stjórn sem skipuð er til 2ja
ára í senn. Í stjórninni sitja
3 fulltrúar sem eru:
Kristleifur Kristjánsson læknir,
formaður stjórnar
Hlynur Halldórsson hrl., meðstjórnandi
Kristján Þórðarson augnlæknir,
meðstjórnandi
Forstöðumaður ÞR
er Ingibjörg Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur.
Hún er ráðin
af stjórn
og sér
um daglegan rekstur miðstöðvarinnar.
|
|
|