Þjónustumiðstöð rannsóknaverkefna | Krókháls 5D, 115 Reykjavík | Sími 520 2800 | Fax 520 2801
 

 
  FORSíÐA
  UM ÞR
STARFSMENN
MÓTTAKA
STAÐSETNING

  RANNSÓKNIR
ERFÐAFRÆÐI
VERKEFNI

UPPLÝST SAMÞYKKI
  SPURNINGALISTAR
  TENGLAR


 

 

 
 

 


Móttaka

Þegar þátttakendur í rannsóknum koma í Þjónustumiðstöð rannsóknaverkefna er tekið á móti þeim í afgreiðslu, þeim afhent samþykki til undirritunar og oftast einnig spurningalisti til útfyllingar. Starfsfólk er tilbúið til að veita aðstoð við að fylla út eyðublöð og spurningalista og veita svör við þeim spurningum sem upp kunna að koma. Þegar skrifað hefur verið undir samþykkisyfirlýsingu og spurningalistar hafa verið fylltir út, gefa þátttakendur blóðsýni. Þeim er síðan þakkað fyrir þátttökuna og þeir leystir út með lítilli gjöf.

Starfsemi Þjónustumiðstöðvarinnar hefur gengið mjög vel allt frá opnun og tugþúsundir Íslendinga hafa komið í heimsókn og tekið þátt í rannsóknum sem vonandi munu skila komandi kynslóðum mikilvægri þekkingu til að bæta meðferð og forvarnir við algengum sjúkdómum.





 


Heim | Notandaskilmálar | Hafðu samband 
 © Copyright 2000-2007 Þjónustumiðstöð rannsóknaverkefna. Allur réttur áskilinn